Komin heim úr vinnustaðanámi

Þrír nemendur í félagsmála- og tómstundanámi eru nýlega komnir heim eftir að hafa dvalið í 4 vikur erlendis í vinnustaðanámi, tvö  fóru til Portúgal og ein til Danmerkur.

Mánudaginn 24. apríl héldu nemendurnir frábæra fyrirlestra fyrir samnemendur og kennara um dvölina erlendis. Eins og sjá má héldu þau athygli áheyrenda vel, enda margar skemmtilegar lýsingar og sögur sem voru sagðar af þeirri upplifun að fá að taka hluta af vinnustaðanáminu sínu erlendis.

Allt stefnir í að helmingi fleiri nemendur í félags- og tómstundanámi, leikskólaliðanámi og félagsliðanámi, nýti sér þetta einstaka tækifæri á næstu önn og feti í þeirra fótspor og dvelji erlendis í 4 vikur í vinnustaðanámi.