Nordplus ferð til Finnlands
Nú stendur yfir annar hluti Nordplus-verkefnisins Global learning power. Fer sá hluti fram í Finnska bænum Porvoo sem er rétt vestan við höfuðborgina Helsinki. Fimm nemendur úr nýsköpunaráföngum bóknámsbrauta eru í för með Óttari Ólafssyni, nýsköpunar- og landafræðikennara, og er umfjöllunarefnið að þessu sinni heilsa og velferð (health and wellbeing). Nemendurnir sem fóru með eru þau Kristín Lísa Friðriksdóttir, Dagur Steinn Guðfinnsson, Sigurjón Óli Gunnarsson, Rakel Heba Ingadóttir og Victoria McDonald Þorkelsdóttir. Þær þjóðir sem taka þátt í verkefninu ásamt okkur Íslendingum og Finnum eru Eistar, Lettar og Danir