
Nordplus málstofa um nýsköpun

Dagana
15.-18. febrúar héldu nemendur á viðskipta- og frumkvöðlabraut Borgarholtsskóla
málstofu á Zoom. Þar voru samankomnir íslenskir nemendur og kennarar auk
nemanda og kennara frá Lettlandi og Finnlandi.
Tilgangur málstofunnar var að
auka og miðla þekkingu og færni í nýsköpun á sviði upplifunar, mikilvægi
hugverkaréttar og hvernig hægt er að auka líkur á arðsemi í stofnun
sprotafyrirtækja. Málstofan er hluti af Nordplus verkefni sem hefur það markmið
að hvetja nemendur á framhaldsskólastigi til nýsköpunar og auka færni þeirra á
því sviði.
Í málstofunni fengu nemendur meðal annars kynningar á íslensku sprotafyrirtækjunum Lauf Cycling, Pink Iceland, Tulipop og Eldstæðið. Óttar Ólafsson, kennari í nýsköpun, stýrði málstofunni en auk hans tóku þátt þrír nemendur skólans; Daði Snær Hálfdánsson, Jón Þorberg Sveinbjörnsson og Vigdís Hervör Guðjónsdóttir. Alls tóku 29 manns þátt í málstofunni að þessu sinni en verkefnið hófst 1. ágúst 2019 og lýkur 30. maí 2021.