Úthlutun Erasmus styrkja á Íslandi

Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Landskrifstofau Erasmus+ menntaáætlunar ESB afhendir Kristveigu Halldórsdóttur verkefnisstjóra erlends samstaf í Borgarholtsskóla styrkina tvo sem skólinn fékk í ár.

Í ár fékk Borgarholtsskóli tvo styrki fyrir nemendur, starfsfólk og kennara sem nýttir verða næstu tvö árin.

  1. Skapandi kennsla og lærdómur hlaut 21.440 evrur  – fyrir kennara og starfsfólk skólans (bóknám).
  2. Skapandi hæfileikar í kennslu og þjálfun hlaut 77.516 evrur – fyrir kennara í verk- og listnámi og nemendur þeirra.

Hér má sjá frétt frá Rannís um úthlutunina og hvaða skólar og stofnanir fengu úthlutað.

Lögð er áhersla á að styrkþegar kynni sér nýjar og skapandi kennsluaðferðir hjá samstarfsaðilum sínum og séu áhugasamir að deila reynslu sinni þegar heim er komið, m.a. með því að skrifa fréttir á þessa vefsíðu á íslensku og ensku. Þannig geta allir innan skólans séð hvert hver og einn fór og hvað viðkomandi lærði. Nemendur eiga að gera slíkt hið sama og á þann hátt getum við sýnt fram á árangurinn af þessum styrkjum sem munu efla skólann, kennara sem nemendur.