Verðlaun í þýskuþraut

Afhent voru verðlaun fyrir 15 efstu sætin i þýskuþrautinni föstudaginn 19. maí sl. en keppnin er árviss meðal framhaldsskólanema í þýsku. Athöfnin fór fram í bústað sendiherra Þýskalands við Túngötu. Eins og áður hefur komið fram varð nemandi okkar, Guðrún María Gunnarsdóttir, í 7.-8. sæti.

Við óskum Guðrúnu Maríu innilega til hamingju með árangurinn.